Fjórtán fallnir á fjórum dögum 20. desember 2011 08:00 Mótmælendur hafa hent grjóti og eldsprengjum að hermönnum í óeirðaklæðum, sem hafa svarað með kylfum og byssukúlum.Fréttablaðið/AP
Hundruð hermanna réðust í gær til atlögu við mótmælendur á Frelsistorginu í Kaíró í Egyptalandi. Heilbrigðisyfirvöld staðfesta að þrír hafi verið skotnir til bana af hermönnum, og hafa þá alls fjórtán verið drepnir í átökum hers og almennings frá því á föstudag. Mótmælendur krefjast þess að herstjórnin, sem hefur stýrt landinu frá því að Hosni Mubarak hrökklaðist frá völdum, fari frá völdum. Mótmælendur hafa fylkt liði á Frelsistorginu og krafist breyttra stjórnarhátta síðustu þrjár vikur. Frá því á föstudag hafa hermenn ítrekað reynt að ryðja torgið. Þeir hafa beitt kylfum og skotið gúmmíkúlum að mótmælendum, en engar fréttir höfðu borist af því að þeir hafi beitt hefðbundnum skotvopnum gegn mótmælendum fyrr en í gær. „Það rigndi byssukúlum í morgunsárið,“ segir Ahmed Saad, læknir sem staðið hefur vaktina í sjúkratjaldi sem sett hefur verið upp á torginu. Hann segir í það minnsta sex hafa verið skotna til bana í gær, tvöfalt fleiri en heilbrigðisráðuneytið fullyrðir. - bj
Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Innlent „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Innlent Fleiri fréttir Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Sjá meira