Klámbúllumyndin af kónginum talin fölsuð 17. desember 2011 03:00 karl Gústaf Svíakonungur
Sænska dagblaðið Expressen birti í gær mynd sem fyrrverandi klámbúllueigandinn og glæpamaðurinn Mille Markovic fullyrðir að sé af Karli Gústaf Svíakonungi innan um nektardansmeyjar. Expressen hefur látið sérfræðinga þriggja myndgreiningarfyrirtækja, tveggja breskra og eins sænsks, rannsaka myndina. Niðurstaða rannsókna þeirra er að vissir hlutar myndarinnar séu falsaðir, samkvæmt frásögn Expressen. Á myndinni, sem er af myndbandsupptöku, situr karlmaður, hallar sér aftur og horfir á léttklæddar konur sem gamna sér í sófa. Viss tæknileg atriði þykja geta bent til þess að skipt hafi verið um andlit á myndinni. Það er ljósara en aðrir líkamshlutar mannsins auk þess sem birtan fellur öðruvísi á hann heldur en á aðra hluta myndarinnar. Markovic, sem dæmdur hefur verið fyrir fjölda afbrota, sagði á leið í réttarsal í gær að átt hefði verið við myndina til þess að vernda stúlkurnar. Myndin verður birt í ævisögu Markovic sem kemur út í janúar. Ævisöguritarinn, Deanne Rauscher, er annar höfunda bókar um konunginn sem kom út í fyrra, Den motvillige monarken, en í henni var greint frá meintum kvennamálum konungs og heimsóknum hans í klúbba glæpamanna. Meirihluti Svía vill að konungurinn láti af embætti samkvæmt niðurstöðu könnunar á vegum TV4 sem gerð var fyrir nokkrum dögum. Staða konungs hefur versnað enn frekar eftir fréttir af leynilegum samningaviðræðum náins vinar hans við mafíuna um að Markovic hætti við birtingu meintra konungsmynda gegn greiðslu upp á milljónir sænskra króna. - ibs
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira