Þúsundir þorpsbúa taka þátt í óeirðum 17. desember 2011 04:30 Reiðir þorpsbúar Nánast daglega hafa þúsundir manna safnast saman á götum Wukan til að mótmæla bæjaryfirvöldum, sem seldu verktökum landsvæði sem notað hefur verið til landbúnaðar.nordicphotos/AFP
Mikil ólga hefur verið undanfarna mánuði í Wukan, tuttugu þúsund manna bæ í sunnanverðu Kína. Upp úr sauð nú í vikunni eftir að Xue Jinbo, slátrari sem hafði talað máli bæjarbúa gagnvart stjórnvöldum, lést í fangelsi um síðustu helgi. Þúsundir manna hafa tekið þátt í mótmælum á götum bæjarins undanfarna daga, nánast daglega. Í gær mættu svo sjö þúsund manns í útför Xues, þar sem farið var fögrum orðum um hinn látna. Deilurnar við stjórnvöld snúast um landsvæði, sem bæjarbúar segja að opinberir embættismenn hafi selt til verktaka án þess að hafa fengið til þess leyfi frá bæjarbúum, sem hafa notað þetta landsvæði til landbúnaðar og gera til þess tilkall. Mótmæli gegn stjórnvöldum á sveitarstjórnarstigi hafa undanfarin ár orðið æ algengari í Kína. Sjaldan berast þó miklar fréttir af slíkum mótmælum út fyrir landsteinana. Í Wukan hafa mótmælin orðið háværari og öflugri en víðast hvar. Mótmælendur hafa reist vegartálma umhverfis bæinn og hafa ekki hleypt lögreglu inn fyrir. Xue var einn þeirra sem hvað ákafast börðust fyrir málstað bæjarbúa, sem eru sannfærðir um að lögreglan hafi valdið dauða hans með misþyrmingum í fangelsinu þar sem hann lést daginn eftir að hafa verið handtekinn. Dóttir hans segir að á líki hans hafi sést greinilegir áverkar og bólgur á munni, höndum, hálsi og víðar, auk sára á enni og kjálka. „Hann var drepinn fyrir að berjast fyrir því að bæjarbúar fái aftur landið. Við grétum öll vegna hans,“ sagði Huang Hancan, einn íbúanna sem mættu í útförina í gær. „Enginn vafi leikur á því að hann var barinn og allir geta ímyndað sér það.“ Upp úr sauð fyrst út í Wukan í september þegar til óeirða kom í tengslum við mótmæli bæjarbúa gegn hinni umdeildu landsölu. Íbúar Wukan hafa síðan sent inn mótmælabréf og krafist funda með yfirvöldum, en án árangurs. Fyrir rúmri viku, á föstudegi, voru nokkrir bæjarbúar handteknir. Daginn eftir höfðu bæjarbúar sett upp vegartálma og meinuðu lögreglu aðgangi. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Fleiri fréttir Sprenging eftir að gestir opnuðu út Íranir óttist „Sýrlandsvæðingu“ Vinna með yfirvöldum í níu löndum að bera kennsl á látna Fyrsta fórnarlambið nafngreint Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Fimm daga þjóðarsorg lýst yfir í Sviss Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Sór embættiseiðinn á niðurlagðri neðanjarðarlestarstöð Kirkja í Amsterdam alelda Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Sjá meira