Enski boltinn

Drogba dregur sig úr landsliðshópnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hugað að Drogba sem gat ekki borið hendurnar fyrir sig þegar hann lenti enda rotaður.
Hugað að Drogba sem gat ekki borið hendurnar fyrir sig þegar hann lenti enda rotaður. Nordic Photos / Getty Images
Didier Drogba, framherji Chelsea, hefur dregið sig úr landsliðshópi Fílabeinsstrandarinnar sem mætir Rúanda í undankeppni Afríkukeppninnar á laugardag. Drogba meiddist í leik Chelsea gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Drogba, sem hefur skorað 49 mörk fyrir þjóð sína, lenti í samstuði við John Ruddy, markvörð Norwich í 3-1 sigri Chelsea á Stamford Bridge um helgina. Ruddy kýldi Drogba að því er virtist óviljandi í andlitið með þeim afleiðingum að Drogba rotaðist.

Framherjinn stæðilegi, sem var án meðvitundar í hálfa klukkustund, var fluttur á spítala. Líðan Drogba mun vera þokkalega en hann spilar þó ekki um helgina. Hann mætir miklum stuðningi hjá knattspyrnusambandi þjóðar sinnar.

„Við vorum mjög hræddir um hann og hann ferðast ekki með liðinu til Kigali. Allir í liðinu hugsa til hans og vona að hann sé á góðum batavegi,“ sagði Francois Zahoui, þjálfari landsliðsins á heimasíðu knattspyrnusambandsins.

Fílabeinsströndin hefur þegar tryggt sæti sitt í Afríkukeppninni á næsta ári. Liðið getur þó viðhaldið fullkomum árangri sínum í undankeppninni á laugardaginn en liðið hefur unnið alla sína leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×