Erlent

Þriðji hver Dani haldið framhjá

Mynd/AFP
Ný könnun leiðir í ljós að þriðji hver Dani hefur verið maka sínum ótrúr einhvern tímann á ævinni. Framhjáhaldið skiptist nokkuð jafnt milli kynja.

Það var Gallup sem gerði þessa skoðanakönnun fyrir blaðið BT en það er hefðbundið fyrir danska fjölmiðla að fjalla um framhjáhald á þessum árstíma þegar jólahlaðborðavertíðin er í fullum gangi í Danmörku. Aðrar kannanir hafa sýnt að framhjáhald meðal Dana stóreykst á aðventunni enda tækifærin ærin í jólahlaðborðum þar sem ölvun er mikil.

Helsta ástæða framhjáhalds hjá körlum er skortur á kynlífi heimafyrir en helsta ástæða kvenna er að fá staðfestingu á því að vera enn eftirsótt í augum karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×