Gróf upp lík og klæddi í kjóla 8. nóvember 2011 12:30 Aðkoman heima hjá sagnfræðingnum forvitna var skelfileg. Hér er mynd af einu líkanna eins og það fannst. Fréttablaðið/AP
Lögregluyfirvöld í Rússlandi hafa handtekið mann eftir að jarðneskar leifar 27 ungra kvenna fundust í íbúð hans. Maðurinn er grunaður um að hafa grafið lík kvennanna upp víðs vegar um Rússland, en flestar í borginni Nizhny Novgorod þar sem hann býr. Sá handtekni heitir Anatoly Moskvina, 45 ára gamall sagnfræðingur, og er lýst sem bráðgáfuðum furðufugli. Hann hefur um árabil unnið að því að skrifa bók um rússneska kirkjugarða sem hugsuð er sem leiðarvísir fyrir áhugamenn um kirkjugarða og greftrunarsiði þar í landi, að því er BBC greinir frá. Mun maðurinn hafa rannsakað 750 kirkjugarða á nokkurra ára tímabili. Sveit innan lögreglunnar hefur rannsakað málið eftir að tilkynningar um horfin lík tóku að berast í tugavís. Grafarræninginn er sagður hafa haft 27 lík af ungum konum í íbúð sinni sem hann klæddi í kjóla eða klæddi upp sem leikfangabangsa. Upp um hann komst þegar foreldrar hans komu í óvænta heimsókn. Nágrannar Moskvina segja hegðun hans hafa verið undarlega; svaf hann oft á garðbekkjum kirkjugarða eða í líkkistu heima hjá sér, að því er vefmiðillinn Mail Online greinir frá. -shá
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fleiri fréttir Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Sjá meira