Liverpool-menn streyma til Frakklands - Poulsen til Evian Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. ágúst 2011 16:00 Christian Poulsen og Kenny Dalglish. Mynd/Nordic Photos/Getty
Christian Poulsen, fyrirliði danska landsliðsins, hefur fundið sér nýjan samanstað enda löngu orðið ljóst að það var ekki pláss fyrir hann á miðju Liverpool. Líkt og hjá Joe Cole þá endar Poulsen í Frakklandi. Christian Poulsen skrifaði í dag undir samning við nýliða Evian í frönsku deildinni. Evian-liðið hefur náð í fimm stig út úr fyrstu fjórum leikjunum og situr í 14. sæti deildarinnar. Frægasti leikmaður liðsins er örugglega Sidney Govou, fyrrum landsliðsmaður Frakka. Poulsen kom til Liverpool frá Juventus síðasta sumar eftir tvö slök tímabil í ítalska boltanum. Honum tókst ekki að lífga við ferill sinn á Anfield og lék aðeins tólf deildarleiki með liðinu. Kenny Dalglish vildi frekar nota Jay Spearing í fyrra og keypti síðan fullt af miðjumönnum í sumar. Christian Poulsen, sem er 31 árs gamall varnartengiliður, átti sín bestu ár með spænska liðinu Sevilla frá 2006 til 2008 þar sem hann vann spænska bikarinn, Ofurbikar UEFA, spænska Ofurbikarinn og UEFA-bikarinn. Hann lék áður með Schalke í Þýskalandi, fór frá Sevilla til Juventus, svo til Liverpool og mun nú reyna fyrir sér í franska boltanum. Hann hefur því spilað í fimm stærstu deildunum í Evrópu á sínum ferli.
Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Fleiri fréttir Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Sjá meira