Málaferli vegna dauðrar rottu 3. nóvember 2011 11:00 Dauða rottan fannst í matvælagámi.
Þegar danska matvælaeftirlitið fékk tilkynningu frá fyrirtækinu Flex Pack, sem selur Nupo megrunarduftið, í apríl síðastliðnum um að fundist hefði dauð rotta í gámi með heslihnetum frá Tyrklandi ákvað eftirlitið að farminum, 24 tonnum, yrði eytt. Litið var svo á að hneturnar væru mengaðar af úrgangi frá rottum og þess vegna gætu þær verið heilsuspillandi. Þær væru ekki hæfar til neyslu. Talsmenn fyrirtækisins Flex Pack kváðust ekki vera eigendur farmsins, sem var metinn á jafngildi rúmlega 17 milljóna íslenskra króna, þar sem gámurinn væri enn í fríhöfninni í Kaupmannahöfn. Um væri að ræða eins konar einskis manns land. Lögmaður fyrirtækisins taldi fyrirtækið hafa rétt til þess að skila hnetunum. Seljandinn í Tyrklandi vildi fá hneturnar endursendar og krafðist bóta af Flex Pack léti það eyða þeim. Hann hefur höfðað mál gegn danska landbúnaðar- og matvælaráðuneytinu, að því er segir á vef 24 stunda í Danmörku. Þar er þess getið að Yildirim Yilmaz, forstjóri tyrkneska hnetufyrirtækisins Poyraz Poyraz, sé æfur. Hann vill fá hneturnar sínar aftur og kveðst vilja láta tyrkneska matvælaeftirlitið rannsaka farminn. Því er jafnframt lofað að hneturnar verði ekki aftur sendar til Evrópusambandsríkis.- ibs
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Fleiri fréttir Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Sjá meira