Erlent

Suu Kyi fundar með valdhöfum

Aung San Suu Kyi
Aung San Suu Kyi
Aung San Suu Kyi, leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Mjanmar, fundaði í fyrradag með vinnumálaráðherra landsins um lýðræðisumbætur. Þau ræddu einnig sakaruppgjöf pólitískra fanga, friðarviðræður við vopnaða hópa og efnahagsmál.

Þíðu hefur gætt í samskiptum valdhafa við lýðræðishreyfinguna frá því að ný ríkisstjórn tók við völdum í Mjanmar í mars eftir áratuga stjórn hersins. Nýja stjórnin nýtur þó stuðnings hersins og fékk umboð í kosningum sem lýðræðishreyfingin neitaði að taka þátt í.

Hefur hún samt sem áður reynt að koma til móts við kröfur lýðræðishreyfingarinnar og sleppti til að mynda 200 pólitískum föngum úr haldi fyrr í þessum mánuði.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×