Skýrslan ótrúlega þunnur þrettándi 15. október 2011 04:45 Össur Skarphéðinsson vísar gagnrýni rannsóknastofnunar sænska hersins algerlega á bug. fréttablaðið/Stefán „
Mér þykir þessi skýrsla nú ótrúlega þunnur þrettándi þegar kemur að varnar- og öryggismálum," segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um skýrslu rannsóknarstofnunar sænska hersins um ástand öryggismála á Íslandi, sem Fréttablaðið sagði frá í gær. „Hins vegar gefur hún góða félags- og sálfræðilega sýn á þjóð í vanda að lokinni kreppu." Össur segir til dæmis varla minnst í skýrslunni á varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna frá 1951, sem enn er í fullu gildi, né heldur þá varnaráætlun sem gerð var fyrir Ísland árið 2006 þegar herinn fór. Á septemberþinginu í haust var auk þess samþykkt þingsályktun um mótun þverpólitískrar þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland og í mars samþykkti þingið aðra ályktun um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða. „Þessi vinna er að fara af stað núna í vetur," segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar. „En menn skyldu þá líka athuga það að þegar herinn fór héðan þá var þetta mál ekki á dagskrá þáverandi ríkisstjórnar. Það hefur engin vinna verið lögð í þetta fyrr en núna, að við erum að gera það." Sænsku sérfræðingarnir ýja einnig að því, í skýrslu sinni, að Ísland hafi verið að einangra sig í varnarsamstarfi nágrannaríkjanna með því til dæmis að taka minni þátt í sameiginlegum heræfingum en til stóð á tímabili. „Um þetta er auðvitað pólitískur ágreiningur á Íslandi," segir Árni Þór. „Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að slíkt þjóni bara alls ekki hagsmunum Íslands, þótt þessar heræfingar geti verið mikilvægar sem framlag Íslands til NATO." - gb
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira