Háttsettir félagar Gaddafís flýja 7. september 2011 08:15 Samningaviðræður nálægt Bani Walid Abdalla Kenshil, aðalsamningafulltrúi uppreisnarmanna, ásamt ættbálkaleiðtogum frá Bani Walid í mosku skammt fyrir utan borgina.fréttablaðið/AP
Nokkrir háttsettir stuðningsmenn Múammars Gaddafí flúðu í gær frá Líbíu yfir til nágrannalandsins Níger. Þeir fóru þangað í hópum í nokkrum bílalestum, sem ekið var hratt yfir eyðimörkina í Líbíu til landamæranna. Meðal þeirra sem flúðu var Mansour Dao, sem var yfirmaður öryggismála hjá Gaddafí. Þetta staðfesti tollvörður á landamærunum í Níger. Um tólf aðrir háttsettir embættismenn Gaddafístjórnarinnar eru sagðir hafa verið meðal þeirra sem yfirgáfu landið. Flóttinn getur skipt sköpum í baráttu uppreisnarmanna gegn stuðningsmönnum Gaddafís, sem enn hafa á valdi sínu þrjár borgir í landinu, Bani Walid, Sirte og Sabha. Ekkert er enn vitað um Gaddafí sjálfan en fullvíst þótti að hann hefði ekki verið með í bílalestunum sem fóru til Níger í gær. Leiðtogar uppreisnarhreyfingarinnar, sem hefur náð mestum hluta landsins á sitt vald, þar á meðal höfuðborginni Trípolí, hafa átt í samningaviðræðum við ættbálkahöfðingja í Bani Walid. Takmarkaður árangur hafði þó orðið af þeim viðræðum í gær, enda mikil tortryggni á báða bóga. Uppreisnarmenn segja íbúana í Bani Walid skiptast í tvær fylkingar, og vilji sumir gefast upp en aðrir halda áfram baráttu gegn uppreisnarmönnum, þótt vonlítil virðist vera.- gb
Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Fleiri fréttir Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Sjá meira