NATO sendir ekki hermenn inn í Líbíu 9. júní 2011 10:00 Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, ræddi við blaðamenn í Brussel í gær. Varnarmálaráðherrar sambandsins munu funda áfram í dag. fréttablaðið/ap
Varnarmálaráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) telja að góður árangur hafi náðst með loftárásum á herafla Líbíu á síðustu tveimur mánuðum. NATO mun halda áfram loftárásum sínum eins lengi og þurfa þykir, sagði Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri bandalagsins, á fundi með fjölmiðlafólki í höfuðstöðvum NATO í Brussel. Á fundinum í gær samþykktu ráðherrarnir að heimila áframhaldandi loftárásir út september, til að framfylgja tilskipun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Ráðherrarnir funda áfram í dag. Rasmussen sagði í gær að hann myndi nota fundinn til þess að ýta á að fleiri ríki taki þátt í áframhaldandi aðgerðum í Líbíu. Nokkur lönd bæru nú hitann og þungann af þeim, en ekki hefur verið greint frá því opinberlega hversu mörg ríki taka þátt í loftárásunum á landið. Sænska ríkisstjórnin tilkynnti í gær að samkomulag hefði náðst við stjórnarandstöðuna um að framlengja þátttöku sænskra þotna í aðgerðum NATO. Þjóðverjar hafa ekki skipt um skoðun og taka ekki þátt í hernaðaraðgerðunum, þrátt fyrir mikinn þrýsting þar um. Rasmussen sagði í gær aðeins tímaspursmál hvenær Múammar Gaddafí, leiðtogi Líbíu, hrökklist frá völdum, og því þurfi Sameinuðu þjóðirnar að undirbúa aðstoð við Líbíu eftir brotthvarf Gaddafís. Hann sagði skýrt að NATO ætlaði sér ekki að senda hermenn til landsins til að tryggja frið þar eftir að árásum linnir, enda rúmist slíkt ekki innan ályktunar öryggisráðsins. Gaddafí hét því hins vegar á þriðjudag að gefast ekki upp. Hann sagði það eina kostinn í stöðunni, hvort sem það endaði með sigri eða dauða. Áfram voru gerðar harðar árásir á höfuðborg Líbíu, Trípólí, í gær. Árásir eru nú gerðar á daginn en ekki aðeins á kvöldin eða nóttunni eins og áður. NATO stendur þó fast á því að Gaddafí sé ekki og verði ekki skotmark árásanna. Þær rugli þó bæði og stöðvi hersveitir Gaddafís og beint samband sé á milli árásanna og verndun almennra borgara í landinu. Áfram verður fundað í dag en búist er við því að mestur tími fari í umræður um stríðið gegn talibönum.brjann@frettabladid.is thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira