Tevez frábær og City komið á toppinn Hjalti Þór Hreinsson skrifar 15. janúar 2011 16:33 Tevez fagnar í dag. AFP
Manchester City er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Wolves í dag. Fyrirliðinn Carlos Tevez var manna bestur en Edin Dzeko spilaði sinn fyrsta leik fyrir milljarðamæringana eftir söluna frá Wolfsburg fyrir 27 milljónir punda. En City byrjaði ekki vel. Nenad Milijas skoraði af stuttu færi eftir atgang í teignum og kom Úlfunum óvænt yfir. En Kolo Toure jafnaði skömmu fyrir leikhlé með góðum skalla eftir hornspyrnu. Carlos Tevez tók svo til sinna ráða í seinni hálfleiknum. Hann skoraði glæsilegt mark strax í upphafi hans og gaf tóninn. Hann lagði svo upp mark fyrir Yaya Toure eftir glæsilega sókn og skoraði svo fjórða markið sjálfur með flottum skalla. Kevin Doyle minnkaði muninn úr víti. Ronal Zubar minnkaði muninn svo í 4-3 og gaf Úlfunum veika von undir lokin. En það dugði ekki til og lokatölur 4-3 fyrir City. Dzeko spilaði mjög vel og virðist falla vel að leikstíl liðsins, og ekki síst að leikstíl Tevez.Chelsea var í miklu basli með Blackburn og virtist fyrirmunað að skora. Branislav Ivanovic braut loksins ísinn í seinni hálfleik með skoti af stuttu færi. Nicolas Anelka tvöfaldaði svo forystu Chelsea með marki eftir hornspyrnu.WBA vann góðan heimasigur á Blackpool, 3-2. David Vaughan skoraði glæsilegt mark fyrir gestina í upphafi leiksins. Peter Odemwingie skoraði svo gott mark og jafnaði metin fyrir WBA. James Morrisson skoraði svo af stuttu færi í seinni hálfleik en Gary Taylor-Fletcher jafnaði með marki 10 mínútum fyrir leikslok. Odemwingie skoraði svo aftur og tryggði WBA sigurinn, 3-2.Stoke átti ekki í teljandi vandræðum með Bolton og vann 2-0. Danny Higginbotham skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu og Matthew Etherington skoraði svo úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Wigan komst yfir gegn Fulham með marki Hugo Rodallega en Andy Johnson jafnaði undir lok leiksins. Niðurstaðan 1-1 jafntefli.
Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira