Stjóri Blackburn drukkinn undir stýri - missti prófið í 18 mánuði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. ágúst 2011 23:30 Ekki er vitað hvernig Kean hyggst komast á milli staða næstu 18 mánuðina.
Steve Kean, knattspyrnustjóri Blackburn Rovers, verður bílprófslaus næstu 18 mánuðina. Kean var fundinn sekur um að hafa ekið undir áhrifum áfengis í maí síðastliðnum. Atvikið átti sér stað 14. maí að loknu 1-1 jafntefli Blackburn og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Úrslitin tryggðu United Englandsmeistaratitilinn og svo gott sem tryggðu Blackburn áframhaldandi veru í efstu deild. Kean var stöðvaður af lögreglunni á 145 km/klst hraða á M6-hraðbrautinni en hámarkshraði er um 113 km/klst. Aðspurður neitaði hann að hafa neytt áfengis. Áfengismagn í andardrætti Kean mældist hins vegar 6,5 mg/L en hámarkið í Englandi er 3,5 mg/L. Kean viðurkenndi frammi fyrir dómara að hafa fengið sér áfengi á þriggja klukkustunda tímabili áður en hann settist upp í bíl. Fyrst tvö og hálft rauðvínsglas með Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra United, og svo einn bjór með félögum sínum. Kean taldi mælingar lögreglu í engu samræmi við áfengisneyslu sína. Hann gaf þá skýringu að sterku áfengi hlyti að hafa verið laumað í drykk sinn að sér fjarstöddum. Þá hefði hann ekki getað tekið eftir breytingu á bragði drykkjarins þar sem hann neytti almennt ekki sterks áfengis. Hann vissi því ekki hvernig það bragðaðist. Dómarinn tók skýringar Kean ekki gildar. Enginn hefði stigið fram og viðurkennt að hafa laumað sterku áfengi í drykki Kean. Þá hefði Kean áður verið staðinn að því að ljúga þegar hann var stöðvaður í bifreið sinni. Auk ökuleyfissviptingar þurfti Kean að greiða 2.520 punda, eða sem nemur tæplega hálfri milljón íslenskra króna, í sekt og málskostnað. Ljóst er að Kean hefur um nóg að hugsa þessa dagana en Blackburn tapaði sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni á heimavelli gegn Wolves. Sparkspekingar reikna með því að lærisveinar Kean verði í basli í boltanum í vetur.Stjóri Blackburn drukkinn undir stýri - missti prófið í 18 mánuði Steve Kean, knattspyrnustjóri Blackburn Rovers, verður bílprófslaus næstu 18 mánuðina. Kean var fundinn sekur um að hafa ekið undir áhrifum áfengis í maí síðastliðnum. Atvikið átti sér stað 14. maí að loknu 1-1 jafntefli Blackburn og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Úrslitin tryggðu United Englandsmeistaratitilinn og svo gott sem tryggðu Blackburn áframhaldandi veru í efstu deild. Kean var stöðvaður af lögreglunni á 145 km/klst hraða á M6- hraðbrautinni en hámarkshraði er um 113 km/klst. Aðspurður neitaði hann að hafa neytt áfengis. Áfengismagn í andardrætti Kean mældist hins vegar 6,5 mg/L en hámarkið í Englandi er 3,5 mg/L. Kean viðurkenndi frammi fyrir dómara að hafa fengið sér áfengi á þriggja klukkustunda tímabili áður en hann settist upp í bíl. Fyrst tvö og hálft rauðvínsglas með Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra United, og svo einn bjór með félögum sínum. Kean taldi mælingar lögreglu í engu samræmi við áfengisneyslu sína. Hann gaf þá skýringu að sterku áfengi hlyti að hafa verið laumað í drykk sinn að sér fjarstöddum. Þá hefði hann ekki getað tekið eftir breytingu á bragði drykkjarins þar sem hann neytti almennt ekki sterks áfengis. Hann vissi því ekki hvernig það bragðaðist. Dómarinn tók skýringar Kean ekki gildar. Enginn hefði stigið fram og viðurkennt að hafa laumað sterku áfengi í drykki Kean. Þá hefði Kean áður verið staðinn að því að ljúga þegar hann var stöðvaður í bifreið sinni. Auk ökuleyfissviptingar þurfti Kean að greiða 2.520 punda, eða sem nemur tæplega hálfri milljón íslenskra króna, í sekt og málskostnað. Ljóst er að Kean hefur um nóg að hugsa þessa dagana en Blackburn tapaði sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni á heimavelli gegn Wolves. Sparkspekingar reikna með því að lærisveinar Kean verði í basli í boltanum í vetur.
Mest lesið Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Handbolti Trump gæti bannað Brasilíumönnum að mæta á HM í fótbolta Fótbolti Þurfa að sanna að þær séu konur áður en þær fá að keppa á HM Sport McGregor tapaði áfrýjun og þarf að borga konunni sem hann nauðgaði Sport Breyttir tímar hjá Man. United: Höjlund skoraði í stórsigri Enski boltinn Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Körfubolti Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Enski boltinn Brady í Birmingham þáttum: Efaðist strax um Rooney og kallaði leikmennina lata Enski boltinn Of falleg saga til að vera ekki skrifuð í skýin Golf Hundur beit fyrrum leikmann Barcelona í punginn Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Arsenal skoraði ekki og tapaði í fyrsta leik Gyokeres Fjórtán er vinsælasta númer sumarsins Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Isak æfir hjá Orra Steini og félögum Breyttir tímar hjá Man. United: Höjlund skoraði í stórsigri Brady í Birmingham þáttum: Efaðist strax um Rooney og kallaði leikmennina lata Šeško nú helsta skotmark Rauðu djöflanna Wirtz með fyrsta markið sitt fyrir Liverpool Vefsíða Arsenal hrundi í miðju Gyokeres æði Bayern staðfestir kaupin á Diaz: „Lucho ist hier“ Flóðbylgjuviðvörunin hefur ekki áhrif á leik Liverpool Hvernig hefur Liverpool efni á Alexander Isak? Með á fótboltaspjöldum þrátt fyrir ákæru vegna nauðgunar Trafford segist hundrað sinnum betri í dag Liverpool nær í framherja frá félagi Beckham og Gary Neville Eddie Howe segir að Newcastle hafi ekki enn fengið tilboð í Isak Alisson flaug heim vegna persónulegra mála Gæti enn spilað í úrvalsdeildinni eftir að hafa fallið þrívegis Nýtt útlit hjá Guardiola Nýtt undrabarn hjá Arsenal Flúraði sig til minningar um Jota Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Gyökeres í flugvél á leið til London Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Sjá meira