Erlent

Flugöryggi oft stefnt í hættu

Danskir flugmenn hafa margoft verið truflaðir með laser-ljósum að undanförnu.Nordicphotos/AFP
Danskir flugmenn hafa margoft verið truflaðir með laser-ljósum að undanförnu.Nordicphotos/AFP
Mikið hefur verið um það undanfarið að danskir flugmenn séu truflaðir með sterkum laser-ljósum af jörðu niðri. Samkvæmt frétt danska ríkisútvarpsins DR voru 22 slík atvik tilkynnt í síðasta mánuði.

„Laser-ljós eru vaxandi vandamál í flugöryggi,“ sagði Thorbjørn Ancker, talsmaður samgönguyfirvalda í Danmörku, við DR. „Það er hætta á að slík truflun geti leitt til flugslyss.“

Flugmálayfirvöld hafa hafið átak með lögreglu til að uppræta vandamálið og er meðal annars mælst til þess að refsivert verði að hafa slík ljós undir höndum.

- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×