Íslenski boltinn

Atli: Oft 3-4 mörkum undir eftir tíu sekúndur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Atli Sigurjónsson, leikmaður Þórs, var sáttur við stigið sem Þórsarar náðu í gegn Fylkismönnum í dag. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

„Það er fínt að ná í stig á útivelli gegn jafn sterku liði og Fylki. Við sættum okkur alveg við það,“ sagði Atli en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

„Þeir fengu örugglega fleiri færi en við til að skora en við fengum líka okkar færi. Það hefur verið stígandi í okkar leik og búnir að laga flest það sem var að í fyrstu leikjum mótsins. Þetta er bara jákvætt og gott fyrir framhaldið.“

„Við fengum bara eitt mark á okkur í dag og varnarleikurinn fínt. Oft höfum við lent þrjú eða fjögur núll undir eftir tíu sekúndur þannig að þetta var fínt í dag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×