Amager-maðurinn dæmdur sekur 20. desember 2011 09:00 Sekur var í gær dæmdur sekur um tvo morð og fjölda kynferðisafbrota á nær aldarfjórðungstímabili.
Marcel Lychau Hansen, betur þekktur sem Amager-maðurinn, var í gær dæmdur sekur um tvö morð og sex nauðganir á rúmlega tuttugu ára millibili. Málið hefur vakið mikla athygli í Danmörku þar sem hann er virkasti raðafbrotamaður í sögu landsins. Hansen verður ákvörðuð refsing á fimmtudag. Lögreglu hafði ekki orðið ágengt í fjölda afbrota sem framin höfðu verið í Amager-bæjarhlutanum í Kaupmannahöfn um langt skeið. Hreyfing komst hins vegar á málið þegar Hansen var handtekinn í fyrra vegna nauðgunar. Lífsýni og önnur sönnunargögn bendluðu hann við fyrrnefnda glæpi, en hann neitaði staðfastlega sök. Mat dómarans var hins vegar að sannað þætti að hann hafi framið alla þá glæpi sem hann var ákærður fyrir, að undanskildu einu nauðgunarmálanna sjö sem hann var sakaður um. Fyrsta málið sem Hansen var sakfelldur fyrir var morð á 73ja ára konu árið 1987, þegar hann sjálfur var 22ja ára. Síðasta málið var svo í fyrra, eins og áður sagði. Við dómsuppkvaðninguna, hristi hinn ákærði höfuðið, líkt og í forundran, segir á vef Jótlandspóstsins, en í þéttsetnum salnum sat einnig fjölskylda Hansens auk nokkurra fórnarlamba hans.- þj
Mest lesið Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Dagný Ósk látin Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Fleiri fréttir Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Sjá meira