Áreynslulaust nám framtíðin? 20. desember 2011 01:00 Rannsókn bandarísku og japönsku vísindamannanna vekur vonir um að í framtíðinni verði hægt að auðvelda til dæmis hljóðfæranám til muna. Fréttablaðið/Valli
Ný rannsókn, sem fjallað var um í tímaritinu Science í síðustu viku, bendir til þess að hægt sé að nýta heilaörvandi tækni til að auka færni eða þekkingu einstaklinga án áreynslu. Í rannsókninni var þátttakendum gert að leysa ákveðin sjónræn verkefni í tölvu á meðan vísindamennirnir notuðu stafræna segulómmyndun til að fylgjast með heilastarfsemi þeirra. Vísindamennirnir höfðu áður kortlagt heilastarfsemina í einstaklingum sem höfðu mikla færni við úrlausn þessara sömu verkefna. Því næst var sjónbörkurinn í heila þátttakendanna örvaður þannig að heilastarfsemi þeirra líktist heilastarfseminni sem hafði þegar verið kortlögð. Kom í ljós að við þetta jókst færni þátttakendanna við úrlausn verkefnanna talsvert þar sem þeir beittu heila sínum á líkan hátt og þeir sem voru færir við úrlausn verkefnanna. Niðurstöðurnar vekja vonir um að í framtíðinni verði hægt að beita svipuðum aðferðum til að auka færni einstaklinga við ýmis önnur verkefni, svo sem við hljóðfæraleik eða jafnvel hefðbundið bóknám. Það voru vísindamenn við Boston-háskóla og ATR Taugavísindastofnunina í Kyoto sem stóðu fyrir rannsókninni. - mþl
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira