Myndir ársins að mati Stjörnufræðivefsins Svavar Hávarðsson skrifar 20. desember 2011 12:30 Mynd ársins. Mynd/Image & Science Laboratory, NASA Johnson Spac
Ár hvert eru milljónir ljósmynda teknar af undrum alheimsins, hvort sem það er af áhugafólki um stjörnufræði, vísindamönnum eða vélvæddum sendiherrum okkar í geimnum. Með vali sínu á þeim myndum sem þeir telja framúrskarandi fallegar eða merkilegar hafa aðstandendur Stjörnufræðivefsins náð að sannfæra okkur um að þeir horfi til himinsins með næmum huga.Mynd ársins Norðurljósin eru ekki aðeins glæsileg að sjá af jörðu niðri heldur einnig utan úr geimnum. Hér sést reyndar hliðstæða þeirra, suðurljósin, eins og þau birtust geimförum í Alþjóðlegu geimstöðinni þegar þeir þutu yfir Indlandshaf 17. september 2011. Suðurljósin eru í um það bil 100 kílómetra hæð en geimstöðin mun ofar, í um 350 kílómetra hæð. Norður- og suðurljósin verða til við árekstra hraðfleygra rafhlaðinna agna frá sólinni við sameindir í lofthjúpi jarðar. Í þessu tilviki kviknuðu ljósin í kjölfar kórónuskvettu sem varð á sólinni þremur dögum fyrr. Litadýrðina má rekja til mismunandi sameinda í lofthjúpi jarðar sem gefa frá sér ljós með tilteknum lit þegar agnir sólvindsins örva þær. Súrefnissameindir gefa frá sér grænan bjarma, hvítan eða rauðan en nitur bláan eða fjólubláan.Sól verður til.Mynd/NASA/ESASól verður til Stjörnur verða til í gas- og rykskýjum. Á lokastigum myndunar sinnar hrista þær stundum ærlega upp í hreiðrum sínum, eins og sést á þessari mynd Hubble-geimsjónaukans. Svæðið heitir S106. Það er tvö ljósár á breidd, sem er um það bil hálf fjarlægðin milli sólar og næstu sólstjörnu. Í miðjunni lúrir ungstirni, 15 sinnum massameira en sólin, sem þeytir frá sér efni með miklu offorsi og raskar gasinu og rykinu í kring. Efnið sem stjarnan spýr út orsakar ekki aðeins stundaglaslögun skýsins heldur hitar það einnig vetnisgasið upp undir 10.000 °C svo það verður óstöðugt.Vetrarbrautarós.Mynd/NASA,ESA og Hubble Heritage Team (STScI/AURA)Vetrarbrautarós Hubble-sjónauki NASA og ESA fagnaði 21 árs afmæli sínu í geimnum á árinu. Af því tilefni var sjónaukanum beint að sérstaklega myndrænu vetrarbrautatvíeyki sem kallast Arp 273 og er í 300 milljón ljósára fjarlægð frá jörðinni. Í Arp 273 eru tvær þyrilþokur sem eru í þann veginn að renna saman í eina. Síðustu ármilljónirnar hafa þær stigið flókinn dans undir stjórn þyngdaraflsins. Nokkrir tugir þúsunda ljósára skilja þyrilþokurnar að.Vetrarbraut í nærmynd.Mynd/NASA/ESA Vetrarbraut í nærmynd Hér sést nærmynd af harla óvenjulegri vetrarbraut. Hún nefnist Centaurus A og er tiltölulega nálægt okkur á stjarnfræðilegan mælikvarða, í aðeins um 11 milljón ljósára fjarlægð. Þvert í gegnum hana liggja þykkar og ógegnsæjar rykslæður sem hleypa sýnilegu ljósi ekki í gegn til okkar. Innan þeirra og á bak við er aragrúi stjarna. Centaurus A ber öll merki þess að hafa rekist á og runnið saman við aðra vetrarbraut. Höggbylgjur sem mynduðust í hamförunum urðu til þess að ský úr vetnisgasi tóku að rekast saman. Nú er þar mikil stjörnumyndun eins og sjá má á afskekktum svæðum og rauðum flekkum á nærmynd Hubble-sjónaukans. Í þéttum kjarna Centaurus A hvílir líka gríðarstórt og mjög virkt svarthol sem gleypir í sig efni í gríð og erg.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira