Terry: Var í lífshættu síðast þegar ég spilaði hér Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. mars 2011 08:00
John Terry rifjaði í gær upp þegar hann spilaði síðast á Millenium-leikvanginum í Cardiff þar sem að Wales og England munu mætast í undankeppni EM 2012 á morgun. Það var árið 2007 og Chelsea lék gegn Arsenal í úrslitum ensku deildabikarkeppninnar. Abou Diaby, leikmaður Arsenal, sparkaði óviljandi af miklum krafti í andlit Terry sem reyndi að skalla að marki eftir hornspyrnu. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi steinrotaðist Terry og voru leikmenn greinilega mjög skelkaðir. En betur fór en á horfðist. „Ég man að ég vaknaði aftur á spítalanum og það fyrsta sem ég gerði var að hrifsa síma vinar míns til að fá að vita stöðuna í leiknum,“ sagði Terry á blaðamannafundi í gær. „Sem betur fer tókst mér að koma mér aftur í búningsklefann og taka þátt í fögnuðinum með strákunum eftir leikinn.“ Gary Lewin starfaði þá sem sjúkraþjálfari hjá Arsenal og var fyrstur til að veita honum hjálp inn á vellinum. „Ég var í lífshættu og var Gary sá fyrsti sem kom inn á völlinn til að hjálpa mér. Ég hef þekkt hann í langan tíma. Hann er frábær náungi og mjög fær í sínu starfi. Hann kom fyrst og svo kom læknir Chelsea og þeir unnu mjög vel saman inn á vellinum.“ Mikið hefur verið fjallað um Terry síðustu daga þar sem að Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, ákvað að gefa honum aftur fyrirliðabandið sem hann tók af honum á sínum tíma. „Það er gaman að vera kominn aftur með fyrirliðabandið og fá að fara fyrir liðinu út á völlinn. Það er það sem mig dreymdi um sem lítill strákur og sem betur fer fékk ég bandið aftur.“ „En það mikilvægasta er samt að við vinnum leikinn. Við viljum komast aftur á topp riðilsins.“ England er í öðru sæti G-riðils með sjö stig eftir þrjá leiki en Svartfjallaland er á toppnum með tíu stig eftir fjóra leiki. Wales er stigalaust á botninum.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira