Ívar fer frá Reading en Brynjar fékk samningstilboð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. júní 2011 09:30 Ívar fagnar marki í leik með Reading. Nordic Photos / Getty Images
Ívar Ingimarsson hefur leikið sinn síðasta leik með enska B-deildarfélaginu Reading en hann mun ekki gera nýjan samning við félagið. Brynjar Björn Gunnarsson er hins vegar að skoða samningstilboð frá Reading. Ívar hefur verið fyrirliði Reading í mörg ár en hann kom til félagsins árið 2003. Hann meiddist illa í fyrra og hefur síðan þá átt erfitt með að festa sig í sessi í byrjunarliðinu á ný. Ívar lék alls 276 leiki með félaginu og skoraði í þeim tólf mörk. Hann var valinn leikmaður ársins fyrir tímabilið 2006-7 en þá lék Reading í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins. „Ívar Ingimarsson hefur þjónað þessu félagi gríðarlega vel og er mikilvægt að það komi fram,“ sagði Nick Hammond, yfirmaður knattspyrnumála hjá Reading, á heimasíðu félagsins. „Hann var besti leikmaðurinn okkar í ensku úrvalsdeildinni - bestu deild heims - og var máttarstólpi í liðinu þegar það naut mikillar velgengni. Við óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni.“ Ívar er 33 ára gamall og ferli hans því langt í frá lokið. Hann hætti fyrir fáeinum árum að gefa kost á sér í íslenska landsliðið. Brynjar Björn er nú að skoða samningstilboð frá Reading. „Hann hefur verið mikilvægur hluti af okkar liði og öðrum leikmönnum mikil fyrirmynd,“ sagði Hammond. „Hann er á þeim aldri að hann gæti viljað fá fleiri tækifæri í byrjunarliðinu og vonandi náum við samkomulagi sem er ásættanlegt fyrir alla “
Enski boltinn Mest lesið Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Körfubolti Arfleifð Cool Runnings lifir áfram á Ólympíuleikunum Sport Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Körfubolti „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ Körfubolti „Mig kitlar svakalega í puttana“ Handbolti Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Handbolti Fleiri fréttir Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Sjá meira