Enski boltinn

Redknapp: United fer ekki taplaust í gegnum tímabilið

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Gareth Bale og Aaron Lennon.
Gareth Bale og Aaron Lennon. AFP
"Við erum með nokkra menn sem Sir Alex vildi gjarnan hafa í sínum leikmannahópi," segir Harry Redknapp en Tottenham og Manchester United mætast síðdegis í ensku úrvalsdeildinni.

"Við hræðumst engan," segir Redknapp sem minnsti sérstakleg á Rafael van der Vaart, Luka Modric og Gareth Bale sem leikmenn sem Ferguson vildi hafa í sínu liði. Reyndar staðfesti Ferguson að hann hafi reynt að kaupa Bale fyrir nokkrum árum, án árangurs.

Redknapp hefur fulla trú á því að liðið hans geti unnið og barist um titilinn. "Þegar við spilum vel erum við jafn spennandi lið og hvað annað sem er að spila vel. Þeir munu hafa áhyggjur af okkur," sagði stjórinn.

"United fer ekki taplaust í gegnum tímabilið. Þeir eru líklegastir til að vinna deildina en það er ekki ósigrandi," sagði Redknapp.

Leikurinn hefst klukkan 16.10 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×