Chicharito bíður eftir græna ljósinu frá Sir Alex Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. ágúst 2011 16:45 Javier „Chicharito" Hernandez. Mynd/Nordic Photos/Getty
Javier „Chicharito" Hernandez er allur að koma til og það styttist í endurkomu Mexíkóbúans snaggaralega í Manchester United liðið. Það verður þó ekki fyrr en að Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United, gefur grænt ljós. Hernandez fékk heilahristing á æfingu í New Jersey í júlí og það var ekki í fyrsta sinn á ferlinum sem þessi 23 ára framherji fær slæmt höfuðhögg. Hernandez hafði einnig fengið heilahristing þegar hann var yngri. „Ég er búinn að vera að æfa með liðinu í þrjá eða fjóra daga en ég veit ekki hvenær ég kem aftur inn í hópinn. Ég hef alltaf sagt að það sé stjórinn sem tekur þessar ákvarðanir en mér líður mun betur núna," sagði Javier "Chicharito" Hernandez og rifjaði upp hvað gerðist í júlí. „Ég var bara að skalla boltann en hitti hann ekki vel. Ég fór aftur upp á hótel og borðaði en fór síðan að finna fyrir ógleði. Ég fór upp á herbergi til að hvíla mig en seinna þurfti ég að kalla á lækni og þeir fóru með mig upp á sjúkrahús," sagði Hernandez. „Ég þarf bara að horfa fram á veginn, ná upp sjálfstraustinu á ný og fara að skalla boltann aftur," sagði Hernandez en hann sló í gegn á sínu fyrsta tímabili með Manchester United og skoraði 20 mörk í 45 leikjum í öllum keppnum.
Mest lesið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Hættur aðeins þrítugur Golf Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Fótbolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Fleiri fréttir Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Sjá meira