Lineker tryggði Tottenham sinn síðasta sigur á Old Trafford Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. ágúst 2011 16:30
Það er óhætt að segja að líkurnar séu ekki með Tottenham sem sækir Manchester United heim í lokaumferð 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í kvöld. Tottenham vann síðast sigur á Old Trafford árið 1989 þegar Gary Lineker skoraði eina mark leiksins. Lineker var reyndar einnig á skotskónum á Old Trafford árið 1992 í sínum síðasta leik í enska boltanum áður en hann lauk ferlinum í Japan. Skalli hans yfir Peter Schmeichel dugði ekki til í 3-1 tapi gegn United. Tottenham hefði með öllu eðlilegu átt að vinna sigur í viðureign félaganna á Old Trafford keppnistímabilið 2004-2005. Þá missti Roy Carroll, markvörður United, boltann langt yfir línuna eftir skot Portúgalans Pedro Mendes frá miðlínu. Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan. Tottenham hefur ekki sigrað United í öllum 20 viðureignum félaganna í úrvalsdeildinni og fimm viðureignum þar á undan í gömlu 1. deildinni. Þá hefur United verið óstöðvandi á heimavelli undanfarið ár og vann 18 heimaleiki af 19 á síðasta tímbili. Gareth Bale, leikmaður Tottenham, hefur gefið út að leikmenn liðsins ætli að láta vaða á mark United. David de Gea, hinn ungi markvörður Englandsmeistaranna, hefur virkað ótraustur í fyrstu leikjum sínum fyrir félagið. Leikurinn í kvöld er fyrsti leikur Tottenham í úrvalsdeildinni á tímabilinu. Viðureign liðsins og Everton í 1. umferð var frestað vegna óeirðanna í London. Luka Modric er utan hóps Harry Redknapp en knattspyrnustjórinn segir að hugarástand Modric þessa dagana sé ekki rétt. Modric hefur ítrekað verið orðaður við brottför frá Tottenham, fyrst til United en nú þykir Chelsea líklegasti áfangastaðurinn. Leikur Manchester United og Tottenham hefst klukkan 19 í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira