Skekkjumörk upp á tugi milljóna manna 1. nóvember 2011 06:00 Danica May Camacho heitir hún og fæddist tvær mínútur fyrir miðnætti í fyrrinótt.nordicphotos/AFP
Á Filippseyjum ákváðu stjórnvöld að „eigna sér“ sjö milljarðasta barn jarðar, sem mannfjöldafræðingum reiknast til að hafi fæðst í fyrrinótt. Lítil stúlka sem kom í heiminn tveim mínútum fyrir miðnætti á sjúkrahúsi í höfuðborginni Manila fékk veglegar móttökur. Embættismenn fluttu ræður, ljósmyndarar smelltu í gríð og erg og svo var súkkulaðikaka í boði. Móðirin, sem er af fátækri fjölskyldu, fékk gjafabréf upp á ókeypis skófatnað handa barninu. Athöfnin var þó meira táknræn en að nokkrum hafi dottið í hug að fullyrða að nákvæmlega þetta barn hafi verið það sjö milljarðasta í röðinni. Satt að segja hefur Gerhard Heilig, sem sér um að gera áætlanir um mannfjöldaþróun fyrir Sameinuðu þjóðirnar, sagt það vera vitleysu að nokkur geti sagt til um hvar eða nákvæmlega hvenær sjö milljarðasta barnið fæðist. Þótt 31. október hafi verið nefndur sé það með eins til tveggja prósenta skekkjumörkum, sem þýðir að sjöunda milljarðinum er náð einhvern tímann á bilinu frá aprílbyrjun í ár til marsloka á næsta ári. Skekkjumörkin þýða líka að nákvæmlega núna getur mannfjöldinn verið 56 milljónum meiri eða 56 milljónum minni en títtnefndir sjö milljarðar. Engu að síður var efnt til sambærilegra athafna víðar um heim í gær. Í héraðinu Uttar Pradesh á Indlandi útnefndu yfirvöld til dæmis sjö nýfædd börn til að vera fulltrúar milljarðanna sjö.- gb
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira