Erlent

Stjórnarmyndun hafin í Túns

Þótt niðurstöðurnar úr þingkosningunum í Túnis um síðustu helgi hafi enn ekki verið gerðar opinberar þykir ljóst að Ennahda flokkurinn er sigurvegari þeirra.

Þessi flokkur var áður bannaður í Túnis og formaður hans var í útlegð frá landinu í tvo áratugi. Ennahda er sagður hófsamur íslamskur stjórnmálaflokkur. 

Í frétt á CNN kemur fram að flokkurinn sé þegar farinn að þreifa fyrir sér um myndun nýrrar stjórnar með tveimur öðrum flokkum sem tóku þátt í kosningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×