Erlent

Lögregla og mótmælendur takast á í Oakland

Mikil spenna ríkir í Oakland.
Mikil spenna ríkir í Oakland. mynd/AFP
Lögreglumenn og mótmælendur tókust á í Oakland í Bandaríkjunum í dag. Hundruðir mótmælenda sem styðja Hernám Wall Street (e. Occupy Wall Street) voru samankomnir í borginni þegar lögreglan tók málin í sínar hendur. Táragasi bar beitt á mótmælendur.

Lögreglan handtók 97 mótmælendur sem neituðu að yfirgefa svæðið.

Mikil spenna ríkir í borginni og hefur lögregla gert nokkrar atlögur að mótmælendum en aðgerðarsinnarnir koma sífellt saman á ný við ráðhús borgarinnar.

Mótmælin í Oakland eru í takt við þær hreyfingar sem sprottið hafa upp í Bandaríkjunum á síðustu vikum. Mótmælendur krefjast úrbóta á efnahagsástandi Bandaríkjanna, ásamt því að mótmæla græðgi og auðvaldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×