Erlent

Andy Rooney á spítala

Rooney starfaði lengi hjá CBS.
Rooney starfaði lengi hjá CBS. mynd/AFP
Pistlahöfundurinn vinsæli Andy Rooney hefur verið lagður inn á spítala.

Rooney, sem er 90 ára gamall, gekk undir aðgerð í síðustu viku og svo virðist sem einhver vandkvæði hafi fylgt henni. Hann er sagður vera í alvarlegu ástandi.

Fjölskylda Rooneys hefur biðlað til fjölmiðla um að virða friðhelgi þeirra.

Rooney sagði skilið við fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur snemma í október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×