Erlent

Fráfall Winehouse rannsakað

Ferill Amy Winehouse var stuttur en plötur hennar njóta þó gríðarlegra vinsælda.
Ferill Amy Winehouse var stuttur en plötur hennar njóta þó gríðarlegra vinsælda. mynd/AFP
Niðurstöður úr réttarrannsókn á dauða söngkonunnar Amy Winehouse voru kynntar í dag. Winehouse fannst látinn á heimi sínu í Camden 23. júlí síðastliðinn. Hún var 27 ára.

Dánarskýrsla söngkonunnar sýnir að verulegt magn áfengis hafi verið í blóði hennar. Á heimili hennar fundust tvær tómar vodkaflöskur. Við rannsókn málsins kom fram að Winehouse hafði sagt skilið við áfengi og hafði ekki drukkið í nokkurn áður en hún lést.

Fíkniefnavandamál Winehouse voru víðfræg en engin ólögleg efni fundust í blóði hennar.

Það var lífvörður Winehouse sem kom að henni látinni þann 23. júlí.

Lögreglan í London hefur viðurkennt að dánarskýrsla söngkonunnar hafi verið sent á ranga aðila og beðist afsökunar á því. Talið er að upplýsingar tengdar réttarrannsókninni hafi verið í skýrslunni. Scotland Yard hefur þegar hafið rannsókn á því hvernig skýrslan komst í rangar hendur.

Eftir að Winehouse lést skaust plata hennar Back to Black á topp vinsældarlistans í Bretlandi. Back to Black er vinsælasta plata 21. aldarinnar í Bretlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×