Erlent

Þjóðarráð Líbíu vill að NATO framlengi dvöl sína

Mustafa Abdul Jalil, stjórnarformaður Þjóðarráðs Líbíu.
Mustafa Abdul Jalil, stjórnarformaður Þjóðarráðs Líbíu. mynd/AFP
Þjóðarráð Líbíu hefur beðið Atlantshafsbandalagið, NATO, um að framlengja dvöl sína í landinu til ársloka.

Stjórnarformaður Þjóðarráðs Líbíu, Mustafa Abdul Jalil, sagði framlenginguna vera nauðsynlega svo að Líbía geti komist á réttan kjöl. NATO geti hjálpað Líbíu við að koma gríðarlegu magni vopna í öruggar hendur og aðstoðað við að uppræta síðustu hópa stuðningsmanna Muammars Gaddafi, fyrrverandi einræðsherra Líbíu.

Talsmenn NATO hafa ekki gefið upp hvenær sambandið hyggst yfirgefa landið.

Jalil sagði einnig að Líbía þurfi hjálp við að tryggja hervarnir sínar.

NATO hefur starfað í Líbíu undir tilskipun frá Sameinuðu Þjóðunum að vernda borgara landsins. Búist er við tilkynningu frá NATO á föstudaginn næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×