Erlent

Fleiri finnast á lífi í Tyrklandi

Yfirvöld í Tyrklandi biðla til alþjóðasamfélagsins eftir hjálp.
Yfirvöld í Tyrklandi biðla til alþjóðasamfélagsins eftir hjálp. mynd/AFP
Björgunarmenn í Tyrklandi björguðu kennara og átján ára pilti úr húsarústum í dag. Þrír dagar eru liðnir síðan jarðskjálfti gekk yfir austurhluta landsins.

Alls hafa 461 látið lífið í kjölfar skjálftans. 1.352 eru slasaðir samkvæmt fréttamiðlum í Tyrklandi.

Í gær var kornabarni bjargað úr húsarústum ásamt móður þess og ömmu.

Yfirvöld í Tyrkland hafa biðlað til alþjóðasamfélagsins eftir hjálp. Mikil þörf er á tjöldum og tímabundnu húsnæði fyrir þá sem misst hafa heimili sín.

Japan var fyrsta þjóðin til þess að bjóða fram aðstoð sína. Japanir þekkja vel til hörmunga eins þessa en í mars á þessu ári létust þúsundir í jarðskjálfta og flóðbylgju þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×