Erlent

Indverji vinnur milljón dollara í spurningarþætti

Slumdog Millionaire kom út árið 2008 og var leikstýrð af Danny Boyle.
Slumdog Millionaire kom út árið 2008 og var leikstýrð af Danny Boyle.
Maður frá einu af fátækastu héruðum Indlands varð sá fyrsti til að hreppa stærsta vinning í indverskri útgáfu spurningarþáttarins Viltu vinna milljón.

Vinningshafinn, Sushil Kumar, er 27 ára gamall og starfar sem tölvuleiðbeinandi í Bihar fylki í Indlandi.

Bróðir Kumars sagði að hann hefði verið vel undirbúinn fyrir þáttinn. Hann sagði að bróðir sinn hlustaði mikið á BBC og þaðan kæmi þekking hans.

Kumar sagði sjálfur að sigurinn hefði komið honum á óvart. Hann giftist fyrir fimm mánuðum og þénar 17.000 kr íslenskar á mánuði.

Velgengni Kumar svipar mjög til kvikmyndarinnar Slumdog Millionaire frá árinu 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×