Nýju skórnir hans Rooney fengu ekki góða auglýsingu um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. september 2011 23:30
Wayne Rooney hjá Manchester United, er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með níu mörk í fyrstu fimm umferðunum og hefur þar með sett nýtt met í markaskorun í upphafi móts í ensku úrvalsdeildinni. Rooney hefði samt auðveldlega getað verið búinn að skora tíu mörk því hann klúðraði víti á eftirminnilegan hátt í sigrinum á Chelsea í gær. Það var hinsvegar hvernig hann klúðraði vítinu sem vakti mesta athygli ekki síst þar sem að hann er nýbúinn að setja á markað nýja skó sem reyndust síðan ekki betur en þetta þegar hann frumsýndi þá á stóra sviðinu. Rooney rann hreinlega á hausinn þegar hann ætlaði að taka vítið sem varð þess valdandi að hann skaut boltanum í stöðufótinn og þaðan fór boltinn langt framhjá markinu. Sem betur fer fyrir Rooney var staðan 3-1 í leiknum og þetta klúður hans réð því ekki úrslitunum. Skórnir bera nafnið T90 og slagorðið er The Perfect Strike eða fullkomna spyrnan. Það er hægt að sjá auglýsingu um nýju skóna frá Nike með því að smella á myndbandið hér fyrir ofan þar sem er farið ítarlega í kosti nýju skónna sem eiga að vera sérhannaðir til að koma boltanum óverjandi í mark andstæðinganna. Rooney skoraði reyndar eitt mark í leiknum í nýju skónum og skórnir eru því kannski ekki alslæmir þótt þeir virki bara illa í vítaspyrnum. Hér fyrir neðan má sjá myndasyrpu frá Getty Images og AP frá því þegar Wayne Rooney rann á rassinn þegar hann ætlaði að taka vítaspyrnuna í gær. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.
Mest lesið Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka Fótbolti Meira en hundrað lögreglumenn fyrir utan HM-hótel Englands Fótbolti Birti margar myndir af sér að „bóka“ Bellingham Fótbolti Skoraði eitt fallegasta mark HM og leitaði uppi kærustuna í stúkunni Fótbolti Solbakken neitar að hafa sýnt Ancelotti vanvirðingu Fótbolti Joey Chestnut gleypti 66 pylsur og vann í átjánda sinn Sport Baulað á enska landsliðið Fótbolti Messi segir að Argentína þurfi að laga marga slæma hluti Fótbolti Stjörnuhrap á Wimbledon-mótinu og Williams-systur gátu ekki spilað Sport Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Körfubolti Fleiri fréttir Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira