Torres með tvö mörk í fyrsta sigri Liverpool undir stjórn Dalglish Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2011 14:43 Fernando Torres skoraði tvö fyrir Liverpool-liðið í dag. Mynd/AP
Liverpool vann 3-0 útisigur á Wolves í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni og hoppaði með því upp í 10. sæti deildarinnar. Þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn Kenny Dalglish og aðeins annar útisigur liðsins á tímabilinu. Fernando Torres skoraði tvö mörk í leiknum og Portúgalinn Raul Meireles átti flottan leik, skoraði eitt glæsilegt mark og lagði upp það fyrsta. Sigur Liverpool var sanngjarn en kannski heldur of stór því Wolves-liðið barðist vel í þessum leik. Fernando Torres fékk dauðfæri áður en hann kom Liverpool í 1-0 með marki á 36. mínútu. Christian Poulsen átti góða stungusendingu á Raul Meireles sem hann lagði hann fyrir markið þar sem Torres átti auðvelt með að skora í autt markið. Úlfarnir vildu frá rangstöðu en endursýningar sýndu að Meireles var réttlega dæmdur réttstæður. Raul Meireles kom Liverpool í 2-0 á 50. mínútu með glæsilegu viðstöðulausu skoti af um 25 metra færi sem var óverjandi fyrir Wayne Hennessey markvörð Wolves. Fernando Torres innsiglaði síðan sigurinn í uppbótartíma eftir að hafa fengið boltann eftir upphlaup Hollendingsins Dirk Kyut. Þetta var fjórði leikur Liverpool undir stjórn Kenny Dalglish en áður hafði liðið tapað fyrir Manchester United (bikar) og Blackpool og gert jafntefli við Everton.
Mest lesið Arnar missti af ræsingu en vann: „Ha? Eru þau farin?“ Sport Fékk hafnabolta í andlitið á 170 km hraða Sport Fá 500 þúsund dollara fyrir að skipta frá Jamaíka yfir til Tyrklands Sport „Einn skemmtilegasti veturinn sem ég hef tekið þátt í“ Sport Spenntari fyrir NFL en EM: „Við horfum á einhverja leiki“ Sport Fylkir ennþá bara unnið einn leik í deild Sport Fimm spennandi leikmenn af EM U-21 Sport Ísland lýkur leik í 11. sæti á Billie Jean King Cup Sport Fyrrum hollenskur landsliðsmaður framseldur til Hollands Sport Tap og rautt spjald hjá Chelsea í HM félagsliða Sport Fleiri fréttir Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Sjá meira