Meistararnir lögðu toppliðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. mars 2011 19:30 Frank Lampard fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Chelsea og Manchester United, meistarar síðustu sex ára í ensku úrvalsdeildinni, áttust við í stórskemmtilegum leik á Stamford Bridge í kvöld. Chelsea hafði þar sigur, 2-1. Erkifjendur Chelsea, Arsenal, eru grönnum sínum í Lundúnum sjálfsagt afar þakkláttir en úrslitin þýða að með sigri í næsta leik getur Arsenal minnkað forystu United á toppnum í eitt stig. Chelsea komst með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinnar. Wayne Rooney kom United yfir með glæsilegu skoti á 29. mínútu leiksins en David Luiz, varnarmaðurinn öflugi sem kom til Chelsea í lok janúar, jafnaði metin snemma í síðari hálfleik. Frank Lampard skoraði svo sigurmark Chelsea úr vítaspyrnu, rúmum tíu mínútum fyrir leikslok, eftir að Chris Smalling braut á Yuri Zhirkov. Leikurinn var opinn, skemmtilegur og hafði allt sem þarf að prýða góðan knattspyrnuleik.Fernando Torres og Nemanja Vidic eigast við í leiknum.Nordic Photos / Getty ImagesChelsea byrjaði mjög vel í leiknum og þeir Florent Malouda og Michael Essien komu sér báðir í ágæt skotfæri á fyrstu tíu mínútum leiksins. Rooney sýndi svo snilldartakta þegar hann skoraði með föstu skoti rétt utan vítateigs neðst í nærhornið. Þar sváfu leikmenn Chelsea á verðinum og gáfu Rooney bæði pláss og tíma til að skora sitt þriðja mark í jafn mörgum deildarleikjum. Branislav Ivanovic komst svo nálægt því að jafna fyrir Chelsea skömmu fyrir hálfleik en Edwin van der Sar sá við honum á glæsilegan máta. Síðari hálfleikur var ekki síður fjörlegur en nú voru það heimamennirnir bláklæddu sem reyndust sterkari. Það byrjaði með því að Luiz skoraði flott mark en þessi brasilíski varnarmaður hefur átt góða innkomu í enska boltann og kórónaði góða frammistöðu í gær með marki. Essien gaf sendingu inn á teig sem Ivanovic framlengdi á Luiz sem skoraði þrátt fyrir að hafa verið með Patrice Evra í sér. Rooney var svo nálægt því að koma United yfir í tvígang með stuttu millibili. Fyrst skoraði hann mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu og svo tók hann góðan sprett inn í teiginn en skot hans hæfði ekki markið. Á 78. mínútu náði varamaðurinn Yuri Zhirkov svo að fiska víti eftir að Chris Smalling braut ansi klaufalega á honum. Frank Lampard skoraði af öryggi úr vítinu og tryggði sínum mönnum þar með sigurinn. Heimamenn voru líklegri ef eitthvað við til að bæta við marki á lokamínútum leiksins fremur en að United að jafna. Nemanja Vidic fékk að líta rauða spjaldið í uppbótartíma er hann fékk sína aðra áminningu fyrir brot á Ramires. Þetta var aðeins annað tap United í deildinni í vetur en liðið er engu að síður enn á toppi deiladrinnar með 60 stig og fjögurra stiga forystu á næsta lið, Arsenal, sem á nú leik til góða. Chelsea kom sér upp í 48 stig með sigrinum og upp í hið eftirsótta fjórða sæti deildarinnar sem er það síðasta sem veitir þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Liðið á kannski lítinn möguleika á að verja titilinn þrátt fyrir þennan sigur en á nú góðan möguleika á að tryggja sér í það minnsta þátttökurétt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Hér fyrir neðan má sjá lýsingu Boltavaktarinnar. Þetta er ný þjónusta á Vísi og enn í þróun. Við biðjumst velvirðingar á því.
Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Körfubolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti „Skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leikmönnum í heimi“ Sport Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti Fleiri fréttir Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Sjá meira