Scolari bauð Drogba í skiptum fyrir Adriano Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. mars 2011 19:00 Nordic Photos / AFP
Luiz Felipe Scolari hefur tjáð sig um veru sína hjá Chelsea sem hann segir vera sín mestu vonbrigði á ferlinum. Scolari tók við Chelsea sumarið 2008 en var svo rekinn rúmu hálfu ári síðar, í febrúar árið 2009. Guus Hiddink tók við og stýrði liðinu til loka leiktíðarinnar samhliða störfum sínum sem landsliðsþjálfari Rússlands. Scolari segir að hann hafi tapað trausti leikmanna og að hann hafi reynt að fá Adriano og Robinho til liðsins til að bæta stöðu þess. „Það var mín sök að mér tókst ekki að hafa betri stjórn á búningsklefanum í mismunandi aðstæðum,“ sagði hann við fjölmiðla í Brasilíu fyrir helgi. „Ég reyndi að gera eitthvað í því og reyndi að kaupa Robinho. Ég vildi fá einhvern sem gæti gert eitthvað upp á sitt einsdæmi inn á vellinum því þannig leikmenn verður maður að hafa í þessari deild.“ „Ég reyndi líka að skipta Drogba út fyrir Adriano því að hann átti í vandræðum hjá Inter. Ég sagði forráðamönnum Chelsea að ég gæti haft stjórn á hegðunarvandamálum hans.“ En ekkert varð vitanlega úr því. Adriano náði ekki að bjarga ferli sínum í Evrópu og leikur í dag með Corinthians í Brasilíu. Drogba er vitanlega enn á mála hjá Chelsea. Scolari segir að tungumálaörðugleikar hafi gert veru sína hjá Chelsea erfiðari. „Kannski gat ég ekki tjáð mig eins vel og ég geri hér í Brasilíu. Enn í dag er ég leiður yfir því hvað gerðist. Þetta er frábær deild og sannkallaður draumastaður. Sonur minn var í námi í frábærum skóla og okkur leið mjög vel. Þess vegna varð ég svona leiður.“
Mest lesið „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti ,,Mikið í gangi í hausnum núna” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn