Halda hjálp frá fólki í lífshættu í Sómalíu 26. júlí 2011 07:45 Sómalísk kona gefur vannærðum syni sínum mjólk í bráðabirgðaskýli í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu. Þúsundir hafa streymt til borgarinnar undanfarnar vikur, og hundruð þúsunda flúið til nágrannalanda Sómalíu. Mynd/AP
Heimsbyggðin tók loks við sér eftir að myndir af sveltandi börnum í Sómalíu og nágrannaríkjum í austanverðri Afríku fóru að birtast í dagblöðum og á sjónvarpsskjáum. Peningar fóru að streyma til hjálparsamtaka sem höfðu varað við yfirvofandi hungursneyð í tvö ár. Alþjóðabankinn lofaði um helgina að veita 500 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir tæplega 58 milljörðum króna, til hjálparstarfs í Austur-Afríku. Hluti fjárins fer í neyðarhjálp en megnið á að fara í uppbyggingu innviða og í að styrkja fólk á svæðinu til að koma sér upp bústofni og útsæði aftur þegar gríðarlegum þurrkum á svæðinu linnir. Í tvö ár hafa samtök tengd al-Kaída-hryðjuverkanetinu hindrað hjálparsamtök í að koma fólki í ákveðnum héruðum Sómalíu til bjargar. Nú eru hjálpargögn farin að berast til landsins, eftir að stríðandi fylkingar lýstu því yfir opinberlega að alþjóðleg hjálparsamtök fengju að koma matvælum til nauðstaddra. Á föstudag virtist þó sem babb væri komið í bátinn. Talsmaður al-Shabab, sem hefur tengsl við al-Kaída og er af mörgum talin hættulegasta fylkingin í Sómalíu, sagði að starfsmönnum flestra erlendra hjálparsamtaka yrði ekki leyft að koma á þeirra yfirráðasvæði. Aðeins nokkur hjálparsamtök fá leyfi al-Shabab til að starfa á svæðum undir þeirra stjórn. Ali Mohamud Rage, talsmaður al-Shabab, sagði það raunar miklar ýkjur að hungursneyð ríkti í tveimur héruðum landsins, eins og Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út. Hann viðurkennir að þurrkar hafi leikið svæðið grátt en segir allt tal um hungursneyð áróður alþjóðasamfélagsins. Al-Shabab-samtökin eru að sögn sérfræðinga févana, klofin og því í erfiðari stöðu en þau hafa verið undanfarin ár. Þá eru leiðtogar samtakanna sagðir óttast að áhrifin frá uppreisnum í öðrum ríkjum í Norður-Afríku smitist til Sómalíu. Yfirlýsing al-Shabab getur sett strik í reikninginn fyrir hjálparsamtök sem vilja koma mat og öðrum hjálpargögnum til nauðstaddra í Sómalíu. Al-Shabab stýrir til dæmis þeim tveimur héruðum í landinu þar sem ástandið er orðið svo slæmt að Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því yfir að hungursneyð ríki þar. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) fær áfram að starfa á svæðum al-Shabab. Starfsmenn stofnunarinnar telja nú að ríflega 700 þúsund börn gætu látið lífið í hungursneyðinni verði ekkert að gert. Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna er hins vegar útilokuð frá þeim héruðum sem hafa orðið verst úti, og getur því lítið aðhafst til að hjálpa um 2,2 milljónum sem eru í bráðri hættu. Hundruð þúsunda hafa flúið stríðsástandið í Sómalíu. Fjölmennustu flóttamannabúðir í heimi eru starfræktar í Keníu, nærri sómölsku landamærunum. Fleiri búðir eru starfræktar í Keníu og Eþíópíu. Hjálparstarfsmenn í búðunum segja að á leið fólksins til búðanna megi víða sjá lítil barnslík á víðavangi. Mæðurnar eru í mörgum tilvikum of máttfarnar til að dysja líkin. brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Sjá meira