Vorkennir árásarmönnunum Hugrún Halldórsdóttir skrifar 11. ágúst 2011 18:45
Tvítugur nemi frá Malasíu, sem var rændur á götum úti eftir að hafa slasast í óeirðum í Lundúnaborg, segist vorkenna árásarmönnum sínum. Almenningur í Bretlandi er snortinn og hafa margir boðist til styrkja þennan ólánsama dreng. Atvikið náðist á myndband og fór það eins og eldur í sinu um netheima. Mörgum ofbauð að sjá hvernig óeirðarseggirnir fóru með hinn ólánsama Ashraf Haziq og þykir myndbrotið sýna þá mannvonsku sem hefur ríkt á götum Lundúna og fleiri borga. Haziq steig fram í dag og kom mönnum í opna skjöldu þegar hann talaði um atburðinn. Hann virðist nefnilega ekki bera mikinn kala til árásarmannanna. „Ég vorkenni þeim. Ég er mjög leiður yfir þessu því þarna voru börn líka. Það var mjög sorglegt." Haqiz hefur séð myndbandið af ráninu og segist sjálfur ekki trúa sínum eigin augum. Hann hefur talað við móður sína sem er skiljanlega mjög áhyggjufull. „Hún vill að ég fari aftur heim en ég neitaði því," segir Haziq og hlær. Einn maður er nú í haldi lögreglu grunaður um að hafa rænt eigum Haqiz. Þessi malasíski nemi hefur svo sannarleg fengið að kynnast mannvonskunni í Bretlandi, en einnig góðmennskunni því margir hafa boðist til að fjármagna hann í kaupum á þeim hlutum sem var stolið. „Það er frábært. Þið eruð mjög örlát, í alvöru. Takk fyrir."
Mest lesið Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Líta eigi á eignir landsbyggðafólks í Reykjavík sem sumarbústaði Innlent Sendi síðasta bréfið degi áður en fellibylurinn gekk yfir Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Valhöll auglýst til sölu Innlent Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Viðskipti innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Tveir fá heilablóðfall á hverjum degi á Íslandi Innlent Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja Innlent Fleiri fréttir Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Vill hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju Fleiri handteknir vegna ránsins í Louvre „Samþykki“ tekið upp í frönskum lögum í kjölfar Pelicot málsins Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Fjórir látnir á Jamaíku og tuttugu í Haítí Hafa játað aðild að ráninu í Louvre Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Bandidos-bifhjólagengið bannað í Danmörku Sjá meira