Scholes gerir lítið úr fallegum fótbolta Arsenal Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. júlí 2011 10:15 Scholes í stimpingum við Marouane Chamakh framherja Arsenal Nordic Photos/AFP
Paul Scholes sem nýverið lagði skóna á hilluna eftir farsælan feril með Manchester United segist vonast til þess að Samir Nasri gangi til liðs við félagið frá Arsenal. Hann segir lítinn tilgang í að spila fallegan fótbolta ef það skilar engum árangri. Franski landsliðsmaðurinn Samir Nasri er orðaður við brotthvarf frá Arsenal. Hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum og útlit fyrir að Arsenal vilji selja hann á meðan þeir geta fengið eitthvað fyrir hann. Manchester United er eitt þeirra liða sem Nasri er orðaður við. Paul Scholes segist vona að Nasri gangi til liðs við United. Hann gerir um leið lítið úr spilamennsku Arsenal sem hann segir ekki skila árangri. „Kannski spila þeir fallegasta fótboltann en það skilar sér ekki alltaf í úrslitunum sem liðið þarf á að halda. Það fer ekki í taugarnar á mér þegar fólk segir þá besta fótboltaliðið því á sama tíma erum við að vinna leiki,“ segir Scholes. „Stundum spila þeir skemmtilegasta boltann en hver er tilgangurinn ef það skilar engum árangri? Ekki nóg með það heldur eru líkur á því að þeir missi sína bestu leikmenn, þá Fabregas, Nasri og Clichy,“ bætti Scholes við. Hann bætir því við að Manchester United undir stjórn Alex Ferguson myndi aldrei fara í gegnum sex ára tímabil án þess að vinna titil.
Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira