Verjandi Mladic segir hann ekki færan um að koma fyrir dóm 29. maí 2011 18:42
Verjandi Radko Mladic segir ómögulegt að halda uppi vitænum samræðum við stríðsherrann fyrrverandi, sem hafi í þrígang fengið heilablóðfall og þrugli nú tóma vitleysu. Hann sé ekki fær um að koma fyrir dóm. Eiginkona, sonur og tengdadóttir Radko Mladic serbneska stríðsherrans sem sakaður er um stríðsglæpi og þjóðarmorð í Bosníu á árunum 1992 til 1995, heimsóttu hann í fangelsi í Belgrad í dag. Verjandi Mladic segir hann í þrígang hafa fengið heilablóðfall og ekkert samhengi sé í því sem hann segi og ómögulegt að halda uppi rökrænum samræðum við hann. „Ég get sagt ykkur að heilsa hans í dag er mun verri en í gær. Andleg líðan hans er mun verri," segir Milos Saljic verjandi Mladic. Mladic er sakaður um hlutdeild í mestu stríðsglæpum og óhæfuverkum sem framin hafa verið í Evrópu frá því í heimsstyrjöldinni síðari. Hann fannst fyrir tilviljun og var handtekinn á fimmtudag eftir að hafa komist undan réttvísinni í sextán ár. Dómstóll mun væntanlega úrskurða strax á morgun hvort hann verður framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag. Meðal hrottaverka sem hann er sakaður um eru fjöldamorð á átta þúsund múslimskum drengjum og karlmönnumí Srebrenica. „Mladic hafði ekkert að gera með það sem gerðist í Srebrenica. Hann bjargaði fjölmörgum konum, börnum og hermönnum. Fyrirskipanir hans voru að flytja brott særða fyrst, síðan konur og börn og loks hermenn sem höfðu verið teknir til fanga. Það sem gerðist tengist honum ekki. Hann gaf aldrei fyrirskipanir um það. Um þetta ræddum við og þeir vissu það áður," segir Darkó Mladic, sonur Ratkó.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán