Eiður lagði upp mark og spilaði vel í öruggum sigri Fulham á Bolton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. apríl 2011 20:53 Eiður Smári Guðjohnsen og Grétar Rafn Steinsson horfa á eftir boltanum í fyrsta markinu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Eiður Smári Guðjohnsen átti flottan leik með Fulham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið vann 3-0 heimasigur á Grétari Rafni Steinssyni og félögum í Bolton. Eiður fékk tvö frábær færi til að skora í fyrri hálfleik og lagði síðan upp annað mark Fulham í upphafi seinni hálfleiks. Eiður Smári hefur verið í byrjunarliði Fulham í síðustu tveimur leikjum og hefur staðið sig vel í þeim báðum. Eiður Smári spilaði fyrstu 68 mínúturnar í 1-1 jafntefli á móti Úlfunum um helgina og var þá líka nokkrum sinnum nálægt því að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið. Eiður Smári fékk hálfgerða heiðursskiptingu á 84. mínútu en það hafði reyndað dregið aðeins af honum eftir frábæran fyrri hálfleik. Það samt alltaf mikið að gerast í kringum Eið Smára í leiknum. Grétar Rafn Steinsson meiddist hinsvegar á hné í seinni hálfleik og þurfti að fara meiddur af velli á 67. mínútu. Grétar Rafn virtist fá yfirfettu á hnéð og gæti verið eitthvað frá í framhaldinu. Eiður Smári fékk algjört dauðafæri strax á 4. mínútu en hitti þá ekki boltann fyrir fram opið mark og það leyndi sér ekki svekkelsi hans í kjölfarið. Clint Dempsey kom Fulham yfir með glæsilegu viðstöðulausu skoti eftir sendingu Chris Baird í kjölfarið á því að Bolton mistóks að bægja frá hornspyrnu á 15. mínútu. Eiður Smári var allt í öllu á upphafsmínútum og fékk sitt annað dauðafæri á 24. mínútu þegar hann slapp í gegn eftir frábært hlaup og langa sendingu frá Chris Baird. Eiður lyfti boltanum framhjá Jussi Jääskelainen sem náði aðeins að koma við boltann sem endaði í stönginni. Grétar Rafn vildi líka minna á sig en Mark Schwarzer varði frá honum ágætis langskot á 30. mínútu. Eiður Smári átti mikinn þátt í öðru marki Fulham sem Bandaríkjamaðurinn Clint Dempsey skoraði á 48. mínútu. Eiður plataði þá vörn Bolton með laglegri hælspyrnu eftir stutta hornspyrnu og boltinn fór til Dempsey sem kom boltanum yfir línuna. Norðmaðurinn Brede Hangeland skoraði þriðja markið með skalla á 65. mínútu eftir aukaspyrnu frá Danny Murphy.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira