Erlent

Fundu 19 vændiskonur og 100 bardagahana í mexíkönsku fangelsi

Óvænt heimsókn lögreglunnar í Acapulco í Mexíkó í eitt af fangelsum borgarinnar leiddi í ljós að þar innan veggja var að finna 19 vændiskonur, um 100 flatskjái, tvo sekki fulla af marijúana og 100 bardagahana.

Þá kom einnig í ljós að sex kvennfangar bjuggu í karlahelmingi fangelsins ásamt tveimur páfuglum. Í frétt um málið á BBC segir að fangelsi í Mexíkó séu alræmd fyrir þrengsli, spillingu og óeirðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×