Óvænt heimsókn lögreglunnar í Acapulco í Mexíkó í eitt af fangelsum borgarinnar leiddi í ljós að þar innan veggja var að finna 19 vændiskonur, um 100 flatskjái, tvo sekki fulla af marijúana og 100 bardagahana.
Þá kom einnig í ljós að sex kvennfangar bjuggu í karlahelmingi fangelsins ásamt tveimur páfuglum. Í frétt um málið á BBC segir að fangelsi í Mexíkó séu alræmd fyrir þrengsli, spillingu og óeirðir.
