Erfitt verkefni fyrir höndum hjá Wenger Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. ágúst 2011 07:00 Arsene Wenger. Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester United tekur á móti Arsenal í stórslag helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Óhætt er að segja að heimamenn séu sigurstranglegri þrátt fyrir að miðverðirnir Vidic og Ferdinand glími við meiðsli. Liðið skellti Tottenham 3-0 á mánudag þrátt fyrir fjarveru þeirra og virkar í fantaformi. Lærisveina Arsene Wenger bíður ærið verkefni enda leikmannahópurinn þunnskipaður. Félagið var rétt búið að selja Cesc Fabregas þegar sjálfkjörinn arftaki hans, Samir Nasri, var seldur til City í vikunni. Jack Wilshere er frá vegna meiðsla auk þess sem miðjumennirnir Alex Song og Emmanuel Frimpong eru í banni. Stuðningsmenn Arsenal höfðu þó ástæðu til þess að gleðjast í vikunni þegar félagið tryggði sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Það er vonandi fyrir Wenger að hann geti byggt á þeim sigri. Hann verður þó án Gervinho, sem lagði upp mark í 2-1 sigrinum á Udinese, en framherjinn er í leikbanni. Wenger hefur verið gagnrýndur fyrir að treysta á unga og óreynda leikmenn en Ferguson er einmitt hrósað fyrir hið sama um þessar mundir. Englendingarnir Phil Jones, Danny Welbeck og Tom Cleverley hafa farið á kostum og koma vafalítið við sögu á sunnudag. Leikurinn á Old Trafford hefst klukkan 15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Sjá meira