Erlent

Ekkert samband milli farsíma og krabbameins í heila

Ný rannsókn leiðir í ljós að ekkert samband er á milli farsímanotkunnar og krabbameins í heila.

BBC greinir frá þessu en á undanförnum 20 árum hafa mikilar deilur verið um hvort farsímanotkun geti valdið krabbameini í heila. Hin nýja rannsókn var unnin af Krabbameinsstofnuninni í Danmörku og náði til um 350 þúsund manns sem notað höfðu farsíma undanfarin 18 ár.

Í ljós kom að þessi stóri hópur var ekki í meiri hættu á að fá krabbamein í heila en annað fólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×