Villas-Boas: Ekki hræddur við það að setja Torres og Lampard á bekkinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2011 14:30 Fernando Torres og Frank Lampard. Mynd/Nordic Photos/Getty
André Villas-Boas, stjóri Chelsea, hefur varað Fernando Torres við því að hann gæti misst sæti sitt í liðinu haldi markaleysið hans áfram. Torres er þegar búinn að missa sæti sitt í byrjunarliði spænska landsliðsins og hefur verið á mikilli niðurleið síðan að hann yfirgaf Liverpool fyrir níu mánuðum síðan. Frank Lampard er önnur stórstjarna Chelsea sem missti sæti sitt í landsliðinu á dögunum en Villas-Boas hefur samt engar áhyggjur af þessum hnignandi stórstjörnum sínum. „Þú glatar ekki hæfileikunum þínum þótt þú skoraði bara 1 mark í 21 leik. Hæfileikarnir eru þarna en þetta er bara spurning um sjálfstraust sem kemur með æfingum og því að fara skora aftur mörk. Eitt af aðalmarkmiðum okkar er að fá okkar bestu leikmenn til að vera frjálsir til að sýna hvað þeir geta," sagði André Villas-Boas sem segir ekkert til í því að Torres sé búinn að tapa hraða eða öðrum hæfileikum sínum frá því að hann raðaði inn mörkum fyrir Liverpool. Menn horfa nú til þess hvað Villas-Boas gerir við Torres þegar Chelsea mætir Manchester United eftir rúma viku en Didier Drogba ætlar að snúa til baka fyrir þann leik. Tveir aðrir sóknarmenn eru líka að banka á dyrnar, Daniel Sturridge er að koma til baka eftir leikbann og þá átti Romelu Lukaku flotta innkomu í síðasta leik. Frank Lampard hefur ekki sýnt sitt allra besta að undanförnu og athygli vakti þegar Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, setti hann á bekkinn fyrir Búlgaríuleikinn fyrir viku. „Lampard er í frábæru formi. Honum líður vel og hann berst fyrir sætinu sínu eins og aðrir. Hann hefur verið í byrjunarliðinu í þremur fyrstu leikjunum þrátt fyrir mikla samkeppni innan liðsins og það segir mikið. Hann er einn af bestu leikmönnunum á Englandi og í ensku úrvalsdeildinni," sagði André Villas-Boas sem svaraði því þó aðspurður að það væri ekkert vandamál að setja bæði Torres og Lampard á bekkinn ef að það væri það besta fyrir Chelsea-liðið.
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Aston Villa - Arsenal | Meistararnir í Birmingham „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Sjá meira