Drogba stefnir á að ná leiknum gegn United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. september 2011 09:00 Didier Drogba eftir að hann var sleginn óviljandi í rot af John Ruddy, markverði Norwich. Nordic Photos / Getty Images
Didier Drogba mun nánast örugglega missa af næstu tveimur leikjum Chelsea en hann stefnir að því að ná leik liðsins gegn Manchester United eftir rúma viku. Drogba rotaðist í leik gegn Norwich fyrir landsleikjafríið og var fluttur meðvitundarlaus upp á sjúkrahús. Síðar kom í ljós að hann fékk vægan heilahristing. „Hann hefur í raun fengið grænt ljós á að byrja að æfa á nýjan leik en hann hefur verið að taka léttar æfingar að undanförnu,“ sagði Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, við enska fjölmiðla. Chelsea mætir Sunderland um helgina og svo Bayer Leverkusen í Meistaradeild Evrópu í næstu viku. Villas-Boas segir nánast öruggt að hann muni missa af þeim leikjum. „Fyrstu dagana eftir meiðslin voru honum afar sársaukafullir. Fjölskyldan og læknarnir okkar fygldust með honum allan sólarhringinn. Síðan þá hefur hann fengið allan þann stuðning sem hann hefur þurft á að halda. Við þurfum að ganga úr skugga um að hann sé orðinn algjörlega heill heilsu áður en hann spilar á ný.“ Villas-Boas var einnig spurður um þá Raul Meireles og Luka Modric. Þann fyrrnefnda keypti hann frá Liverpool en Tottenham hafnaði tilboðum Chelsae í Modric. „Við vildum fá einn mann til viðbótar til að styrkja miðjuna og það var frábær hugmynd að fá Raul. Við erum ánægðir með að hafa fengið hann,“ sagði Villas-Boas. Króatinn Modric vildi sjálfur ólmur fara til Chelsea en forráðamenn Tottenham neituðu einfaldlega að selja hann. Villas-Boas er efins um að félagið muni leggja fram annað tilboð í janúar næstkomandi. „Ég efast um það. Glugginn opnar aftur í janúar og þá getur ýmislegt gerst. En ég ætla ekki að velta vöngum yfir því.“
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira