Tígur í ástarflækju drepinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. september 2011 22:57 Malasíutígrar eru í bráðri útrýmingarhættu. Mynd/ AFP.
Kvenkyns tígrisdýr drap vin sinn í dýragarði í Texas í gær. Afbrýðissemi, sem svokallaður ástarþríhyrningur leiddi af sér, er kennt um að sögn Reuters. Það var þriggja ára malasíutígur sem heitir Seri sem drap sex ára gamlan tígur, sem kallaður var Wzui, um klukkan fjögurleytið í gær að staðartíma í El Paso dýragarðinum. Um leið og atvikið uppgötvaðist var áhorfendum beint frá tígrisdýragryfjunni og dýralæknar voru kallaðir til. Þeir rannsökuðu Wzui og komust að því að hann var dauður. „Sorglegir atburðir á borð við þennan eru ekki óþekktir en við teljum þá alls ekki algenga," sagði Steve Marshall, forstjóri dýragarðsins. Hann sagði að hinn dauði tígur hefði verið mjög jarðbundinn og ástríkur. Hans yrði sárt saknað. Malasíutígrar eru í bráðri útrýmingarhættu og eru einungis um 500 einstaklingar til í villtri náttúrunni í Malasíu og í Tælandi. Marshall sagði að starfsmenn dýragarðsins hefðu ekki orðið varir við neina árásarhneigð í tígrisdýragryfjunni áður en árásin átti sér stað. Í júní síðastliðnum tilkynnti dýragarðurinn hins vegar um ástarþríhyrnings milli Seri, Wzui og 15 ára gamals kvenkyns tígrisdýrs sem heitir Meli. „Wzui er hrifinn af báðum kvendýrunum en kvendýrunum tveimur kemur illa saman," sögðu talsmenn dýragarðsins þá í fréttatilkynningu. „Þær eru afbrýðisamar út í hvor aðra," sagði talsmaður dýragarðsins ennfremur. Ekki er talið ólíklegt að þessi flækja hafi á endanum leitt til þess að annað kvendýrið drap karlinn. Starfsfólk dýragarðsins býst við því að annað karldýr verði flutt í garðinn til þess að malasíutigrarnir þar geti fjölgað sér.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Sjá meira