Dalglish ánægður með unglingana Flanagan og Robinson Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2011 21:15 John Flanagan Mynd/Nordic Photos/Getty
Jamie Carragher og Andy Carroll verða væntanlega fjarri góðu gammni þegar Liverpool mætir Birmingham City í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Kenny Dalglish mun því halda áfram að nota unglingana John Flanagan og Jack Robinson. Carragher rotaðist í jafnteflinu á móti Arsenal á sunnudaginn eftir að hafa lent í samstuði við félaga sinn John Flanagan. Andy Carroll var síðan tekinn af velli í Arsenal-leiknum eftir að hafa fengið högg á hné. Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, er reyndar ekki alveg búinn að afskrifa það að geta notað þá Carragher og Carroll sem fara báðir í gegnum læknisskoðun á morgun. Hún mun endanlega skera út um það hvort þeir geti verið með. „Við verðum að bíða og sjá til með þá Carra og Andy. Það er enn tími fram að leik en eins og staðan er núna þá er mikil óvissa með þá," sagði Kenny Dalglish. Dalglish er himinlifandi með frammistöðu unglinganna John Flanagan og Jack Robinson sem voru báðir með á móti Arsenal en Flanagan hefur byrjað undanfarna tvo leiki. Þeir verða væntanlega í byrjunarliðinu á móti Birmingham. „Við erum mjög ánægðir með þessa stráka og það að þeir hafi stigið þessi fyrstu spor sín á móti liðum eins og Man City og Arsenal segir mikið um þá. Ég vona að þeir haldi áfram á sömu braut en við erum ekki að missa okkur og vitum að það þarf að passa upp á þá báða. Þeir eru bara krakkar ennþá," sagði Dalglish.
Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjá meira