Nigel de Jong: Ég var meðhöndlaður eins og stríðsglæpamaður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2011 23:30 Nigel de Jong sést hér brjóta á Xabi í úrslitaleiknum síðasta sumar. Mynd/Nordic Photos/Getty
Hollenski landsliðsmaðurinn Nigel de Jong var langt frá því að vera vinsælasti knattspyrnumaður heimsins eftir að hann komst upp með fólskulega tæklingu á Xabi Alonso í úrslitaleik HM síðasta sumar. Hann lenti síðan í því að fótbrjóta Hatem Ben Arfa fyrr á þessu tímabili og hefur nú slæmt orð á sér. Nigel de Jong talar um það í nýju viðtali að hann hafi fengið ósanngjarna og ómanneskjulega meðferð eftir úrslitaleikinn á HM. Hann telur að sumt fólk hafi gengið alltof langt. „Ég hafði það á tilfinningunni að fólk væri á eftir mér og væri að reyna að skaða mig. Nigel de Jong var allt í einu orðinn óvinur þjóðarinnar númer eitt og fólk meðhöndlaði mig eins og ég væri stríðsglæpamaður," sagði De Jong í viðtali í hollenska blaðinu De Volkskrant. „Dómarinn hefði vissulega getað gefið mér rautt spjald fyrir brotið og þetta leit ekki vel út þegar ég sá tæklinguna aftur í sjónvarpinu. Ég sá samt Xabi Alonso aldrei koma og var bara að horfa á boltann," útskýrir De Jong. De Jong tjáði sig líka um tæklinguna á Newcastle-manninn Hatem Ben Arfa sem fótbrotnaði illa eftir viðskipti sín við Hollendinginn harða. „Þetta var mjög óheppileg tækling. Ég var mjög leiður að hafa fótbrotið hann en það var aldrei markmiðið mitt að brjóta á honum. Það trúir manni samt enginn þegar ég segi þetta," sagði þessi 26 ára gamli miðjumaður sem var settur í bann hjá hollenska landsliðinu eftir þess tæklingu sína á Ben Arfa. Hann er nú farinn að spila með landsliðinu á nýjan leik.
Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Íslenski boltinn Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Fleiri fréttir Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Sjá meira